FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 07. MAÍ 2010

Út er komið ritið Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2009. Í ritinu kemur m.a. fram að á árinu 2009 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða rúmum 200 milljörðum króna og jókst um 10,9% frá fyrra ári. Er þar um að ræða samtölu útflutnings og birgðabreytinga sjávarafurða. Framleiðslan mæld á föstu verði dróst hins vegar saman um 7,6%. Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 208,6 milljarðar króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 21,8% en dróst saman í magni um 4%. Árið 2009 voru flutt út 669 þúsund tonn samanborið við 697 þúsund tonn árið áður. Útflutt afurðaverðmæti allra flokka aflategunda jókst frá fyrra ári. Líkt og undanfarin ár skiluðu frystar afurðir um helmingi útflutningsverðmætis. Af einstökum afurðum vóg verðmæti blautverkaðs saltfisks úr þorski mest, 16,4 milljarða króna. Af heildarútflutningi sjávarafurða fór 79% til Evrópska efnahagssvæðisins, 6,8% til Asíu og 4,9% til Norður-Ameríku.

Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2009 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.