Aflamagn sem erlend skip lönduðu árið 2024 nam 133 þúsund tonnum sem er 9% aukning frá fyrra ári. Um 90% var uppsjávarafli og fór beint í bræðslu. 8% af aflanum var fryst rækja í gáma til útflutnings og 1% botnfiskar til vinnslu innanlands.
Árið 2024 var aflaverðmæti erlendra landana við fyrstu sölu rúmlega 9,4 milljarðar króna, 61% vegna uppsjávarfiska, 29% fyrir frosna rækju og 9% fyrir botnfisktegundir.