FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 06. SEPTEMBER 2010

Út er komið ritið Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2009. Í ritinu kemur m.a. fram að  innflutt hráefni til fiskvinnslu var 43.866 tonn árið 2009 og dróst saman í magni um tæp 87 þúsund tonn frá fyrra ári eða um 66%. Verðmæti þessa innflutnings var 6,2 milljarðar króna sem er tæplega 1,9 milljarða króna lægri fjárhæð en árið 2008 á verðlagi hvors árs og 38% lægri á föstu verðlagi ársins 2009 miðað við verðvísitölur sjávarafurða. Minna var flutt inn af þorski, ufsa, karfa, norsk-íslenskri síld, kolmunna og rækju en árið áður. Innflutningur jókst á steinbít, hlýra og síld. Verðmæti innflutts hráefnis nam 9,6% af verðmæti þess afla sem tekinn var til vinnslu hérlendis.

Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2009 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.