FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 05. JÚNÍ 2009

Út er komið ritið Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2008. Í ritinu kemur m.a. fram að innflutt hráefni til fiskvinnslu var 130.649 tonn árið 2008 og jókst í magni um 25.447 tonn frá fyrra ári eða um 24,2%. Verðmæti þessa innflutnings var 8,1 milljarður króna sem er tæplega 2,4 milljarða krónu hærri fjárhæð en árið 2007 á verðlagi hvors árs, en 6,8% lægri á föstu verðlagi ársins 2008 miðað við verðvísitölur sjávarafurða. Minna var flutt inn af ufsa, síld og loðnu  en árið áður. Aukning var í innflutningi á þorski, norsk-íslenskri síld, loðnuhrognum, kolmunna og rækju. Verðmæti innflutts hráefnis nam 13,9% af verðmæti þess afla sem tekinn var til vinnslu hérlendis.

Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2008 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.