FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 08. JÚNÍ 2007

Út er komið ritið Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2006. Í ritinu kemur m.a. fram að  innflutt hráefni til fiskvinnslu var 125.645 tonn árið 2006 og dróst saman um 60.498 tonn frá fyrra ári eða 32,5%. Verðmæti þessa innflutnings var 5,2 milljarðar króna sem er rúmlega 100 milljónum króna hærri fjárhæð en árið 2005. Minna var flutt inn af þorski, loðnu, kolmunna og rækju en árið áður. Aukning var í innflutningi á norsk-íslenskri síld. Verðmæti innflutts hráefnis nam 11% af verðmæti þess afla, sem tekinn var til vinnslu hérlendis.

Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2006 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.