FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 20. DESEMBER 2023

Vinsamlegast athugið að þessi fréttatilkynning var leiðrétt 4. janúar 2024 frá upprunalegri útgáfu. Tölur í efnahagsreikningi ársins 2022 voru endurmetnar og hafa verið leiðréttar. Heildareignir sjávarútvegarins eru nú metnar á um 1.062 milljarða króna og eigið fé tæpar 520 milljarða króna.

Hagnaður fyrirtækja í fiskveiðum og vinnslu fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs hækkaði á milli áranna 2021 og 2022. Frá árinu 2021 hækkaði hlutfallið (án milliviðskipta) úr 34,8% í 37%, í fiskveiðum hækkaði það úr 23,6% árið 2021 í 24,6% af tekjum árið 2022 og í fiskvinnslu úr 18,1% í 21,1%.

Hreinn hagnaður (EBT) þessara fyrirtækja samkvæmt árgreiðsluaðferð nam 26,3% árið 2022 samanborið við 22% árið áður. Í fjárhæðum nam hagnaðurinn tæpum 85 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð rúmum 35 milljörðum króna. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð nam hagnaðurinn tæpum 88 milljörðum króna eða 27,3% af tekjum árið 2022 borið saman 27% árið áður.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir sjávarútvegarins um 1.062 milljarðar króna í árslok 2022, heildarskuldir rúmir 542 milljarðar króna (hækkun um 4,3%) og eigið fé tæpir 520 milljarðar króna.

Hagur veiða og vinnslu 2022 — Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.