FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 02. FEBRÚAR 2016

Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs minnkaði milli áranna 2013 og 2014. Í fiskveiðum og -vinnslu lækkaði hlutfallið (án milliviðskipta) úr 26,7% í 24,3%, hækkaði í fiskveiðum úr 20,1% árið 2013 í 20,4% af tekjum árið 2014 og lækkaði í fiskvinnslu úr 17% í 14,2%.

Hreinn hagnaður (EBT) í sjávarútvegi, samkvæmt árgreiðsluaðferð, nam 15% árið 2014 samanborið við 18,2% árið áður. Í fjárhæðum nam hagnaðurinn 36,3 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð 22,3 milljarðar. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð er niðurstaðan sú sama 15% hagnaður 2014 eða 36,3 milljarðar, samanborið við 22,5% hagnað árið 2013.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir sjávarútvegs í árslok 2014 tæpir 574 milljarðar króna, heildarskuldir tæpir 389 milljarðar og eigið fé rúmir 185 milljarðar.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í Hagtíðindum um hag veiða og vinnslu sem gefin hafa verið út.

Hagur fiskveiða og fiskvinnslu 2014 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.