FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 20. DESEMBER 2012

Vinsamlega athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 20. 12. 2012 kl. 10:50 frá upprunalegri útgáfu.

Út er komið hefti í efnisflokknum Sjávarútvegur þar sem birtar eru niðurstöður athugana Hagstofunnar um fiskveiðar og fiskvinnslu fyrir árið 2011.

Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns eða EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegsins jókst milli áranna 2010 og 2011. Í fiskveiðum og -vinnslu hækkaði þetta hlutfall (án milliviðskipta) úr 28,9% í 30,3%, í fiskveiðum lækkaði hlutfallið úr 26,6% árið 2010 í 26,4% af tekjum árið 2011 en hækkaði í fiskvinnslu úr 16,1% í 19,1%. Hreinn hagnaður (EBT), skv. árgreiðsluaðferð, í sjávarútvegi árið 2011 nam 22,6% samanborið við 19,8% hagnað árið áður. Hagnaður var áfram á rekstri mjölvinnslu og á rekstri loðnuskipa á árinu 2011.

Heildareignir sjávarútvegs í árslok 2011 voru 547 milljarðar króna, heildarskuldir 443 milljarðar og eigið fé 105 milljarðar.

Hagur fiskveiða og fiskvinnslu 2011 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.