FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. FEBRÚAR 2006

Út er komið hefti í efnisflokknum Sjávarútvegur þar sem birtar eru niðurstöður athugana Hagstofunnar um fiskveiðar og fiskvinnslu fyrir árið 2004.

Þar kemur m.a. fram að afkoma botnfiskveiða versnaði frá árinu 2003 til ársins 2004 en afkoma botnfiskvinnslu batnaði. Hreinn hagnaður botnfiskveiða, reiknaður samkvæmt árgreiðsluaðferð, minnkaði úr 10½% af tekjum í 7½% og hagnaður botnfiskvinnslu jókst úr 3½% af tekjum í 4½%. Hagur rækjuvinnslu batnaði en engin hörpudiskvinnsla var árið 2004. Hagnaður var áfram á rekstri mjölvinnslu en tap varð á rekstri loðnuskipa á árinu 2004.

Heildareignir sjávarútvegs í árslok 2004 voru 299 milljarðar króna, heildarskuldir námu 209 milljörðum og eigið fé var 90 milljarðar.

Hagur fiskveiða og fiskvinnslu 2004 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.