FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 25. FEBRÚAR 2016

Alls voru 1.663 fiskiskip á skrá hjá Samgöngustofu í lok árs 2015 og hafði þeim fækkað um 22 frá árinu áður. Fjöldi vélskipa var alls 758 og samanlögð stærð þerra um 92.067 brúttótonn. Vélskipum fækkaði um 15 á milli ára en stærð flotans jókst um 6.414 brúttótonn. Togarar voru alls 46 og fækkaði um þrjá frá árinu á undan. Heildarstærð togaraflotans var 53.320 brúttótonn og hefur minnkað um 4.124 tonn frá árslokum 2014. Opnir fiskibátar voru 859 og 4.244 brúttótonn að stærð. Opnum fiskibátum fækkaði um fjóra á milli ára en heildarstærðin jókst um 5 brúttótonn.

Flest fiskiskip voru með skráða heimahöfn á Vestfjörðum í árslok 2015, alls 401 skip, en það eru 24,1% fiskiskipaflotans. Næst flest, alls 301 skip höfðu heimahöfn skráða á Vesturlandi eða 18,1%. Fæst skip voru með skráða heimahöfn á Suðurlandi, 72 alls, en það samsvarar 4,3% af heildarfjölda fiskiskipa. Opnir bátar voru flestir á Vestfjörðum, 233, og á Vesturlandi 172. Fæstir opnir bátar höfðu heimahöfn á Suðurlandi, alls 17. Vélskip voru einnig flest á Vestfjörðum, 162, en fæst á Höfuðborgarsvæðinu, 48 skip. Flestir togarar höfðu skráða heimahöfn á Norðurlandi eystra, alls 9, en 8 togarar á höfuðborgarsvæðinu. Fæstir togarar voru skráðir á Vesturlandi, alls þrír.

Íslenski fiskiskipaflotinn yngdist upp um 11 mánuði að meðaltali á milli árana 2014 og 2015, en meðalaldur fiskiskipa var um 24,9 ár í árslok 2015. Meðalaldur vélskipa var rúm 24 ár, togaraflotans slétt 30 ár og opinna fiskibáta tæp 28 ár.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.