FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 25. FEBRÚAR 2011

Út er komið hefti í efnisflokknum Sjávarútvegur þar sem birtar eru upplýsingar um fiskiskipastólinn í árslok 2010. Alls voru 1.625 fiskiskip á skrá hjá Siglingastofnun og hafði þeim fjölgað um 43 frá árinu áður. Fjöldi vélskipa var alls 761 og samanlögð stærð þeirra 83.457 brúttótonn. Vélskipum fækkaði um 7 skip á milli ára og flotinn minnkaði um 3.312 brúttótonn. Togarar voru alls 57 og fækkaði um einn frá árinu á undan. Heildarstærð togaraflotans var 65.087 brúttótonn og hafði minnkað um 2.783 brúttótonn frá árinu 2009. Opnir fiskibátar voru 807 talsins og 3.857 brúttótonn að stærð. Opnum fiskibátum fjölgaði um 51 milli ára og heildarstærð þeirra jókst um 242 brúttótonn.

Fiskiskipastóllinn í árslok 2010 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.