FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. DESEMBER 2013

Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum nóvembermánuði, metinn á föstu verði, var 13,8% meiri en í nóvember 2012. Það sem af er árinu veiddist 3,9% meiri afli en á sama tímabili árið 2012, sé aflinn metinn á föstu verði.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 81.874 tonnum í nóvember 2013 samanborið við 90.570 tonn í nóvember 2012 sem er 9,6% samdráttur á magni milli ára.

Botnfiskafli jókst um 3.300 tonn frá nóvember 2012 og nam tæpum 41.200 tonnum. Þar af var þorskaflinn tæp 24.600 tonn, sem er aukning um tæp 5.100 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam tæpum 5.200 tonnum sem er 919 tonnum meiri afli en í nóvember 2012. Karfaaflinn nam rúmum 4.800 tonnum í nóvember 2013 sem er 268 tonnum minni afli en í fyrra. Rúm 3.800 tonn veiddust af ufsa sem er 943 tonna samdráttur frá nóvember 2012.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 38.100 tonnum, sem er rúmlega 12.700 tonnum minni afli en í nóvember 2012. Samdráttinn má rekja til um 10.900 tonna minni síldarafla, sem nam tæpum 38.100 tonnum í nóvember 2013, og 1.800 tonna minni loðnuafla en ekkert veiddist af loðnu í nóvember 2013. Nær engar aðrar uppsjávartegundir voru veiddar í mánuðinum.

Flatfiskaflinn var tæp 1.900 tonn í nóvember 2013 og jókst um 561 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 719 tonnum samanborið við 549 tonna afla í nóvember 2012.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunartímabili sem hér er fiskveiðiárið 2011-2012. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.