FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 14. OKTÓBER 2004

Heildarafli íslenskra skipa¹ í nýliðnum septembermánuði var tæplega 62.800 tonn og er það 32.000 tonnum minni afli en í septembermánuði 2003 en þá veiddust nærri 94.900 tonn. Milli septembermánaða 2003 og 2004 dróst verðmæti fiskaflans saman, á föstu verði ársins 2002, um 8,8%. Það sem af er árinu 2004 hefur verðmæti fiskaflans, á föstu verði ársins 2002, dregist saman um 1,1% miðað við árið 2003.
     Botnfiskafli var 36.400 tonn samanborið við 39.100 tonn í septembermánuði 2003 og nemur samdrátturinn 2.700 tonnum á milli ára. Þorskafli var 15.900 tonn en 16.400 tonn bárust á land í september 2003 og er samdráttur þorskaflans 500 tonn. Af ýsu veiddust 7.500 tonn en í fyrra veiddust 5.200 tonn og nemur aukning ýsuaflans því 2.300 tonnum. Úthafskarfaafli var tæplega 1.900 tonn í septembermánuði í ár en var 4.600 tonn í fyrra og er það 2.800 tonna samdráttur milli ára.
     Flatfiskafli var 2.500 tonn og dróst saman um 660 tonn frá septembermánuði 2003. Mest veiddist af skarkola eða 840 tonn en tæplega 700 tonn veiddust af sandkola.
     Afli uppsjávartegunda nam 21.800 tonnum, þar af var kolmunnaafli 11.700 tonn og síldarafli 9.900 tonn.  Í samanburði við afla septembermánaðar 2003 er samdráttur í kolmunna 32.700 tonn en síldarafli jókst um 5.100 tonn.
     Skel- og krabbadýraafli var 2.000 tonn samanborið við 3.400 tonna afla í september 2003. Mestur var aflasamdráttur í rækju eða rúmlega 1.200 tonn.
     Heildarafli íslenskra skipa það sem af er árinu 2004 nemur 1.368.000 tonnum og er það 236.000 tonna minni afli en á sama tímabili ársins 2003. Botnfiskafli var 367.000 tonn sem er 14.500 tonnum meiri afli en í fyrra. Þá hefur flatfiskafli dregist saman um 4.800 tonn og uppsjávarafli hefur einnig dregist saman eða sem nemur  235.000 tonnum. Þar af er samdrátturinn 162.700 tonn í loðnuafla, 30.200 tonn í síldarafla og 41.800 tonn í kolmunnaafla. Þá er skel- og krabbadýraaflinn 10.700 tonnum minni í ár en á sama tímabili ársins 2003.



¹Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.