FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. NÓVEMBER 2010


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum októbermánuði, metinn á föstu verði, var 4,1% meiri en í október 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 8,6% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 83.261 tonnum í október 2010 samanborið við 67.023 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli dróst saman um tæp 1.400 tonn frá október 2009 og nam um 38.000 tonnum. Þar af nam þorskaflinn tæpum 17.000 tonnum, sem er aukning um rúm 900 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam rúmum 4.500 tonnum, sem er um 1.800 tonnum minni afli en í október 2009. Um 4.800 tonn veiddust af ufsa, sem er um 1.000 tonnum meiri afli en í október 2009. Karfaaflinn dróst saman um tæp 400 tonn og nam um 6.400 tonnum. Nær sama magn var í öðrum botnfiskafla milli ára og nam hann rúmum 5.300 tonnum.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 43.00 tonnum, sem er um 17.200 tonnum meiri afli en í október 2009. Var það líkt og árið áður nær eingöngu síld.

Flatfiskaflinn var rúm 1.600 tonn í október 2010 samanborið við tæp 1.400 tonn árið áður. Skel- og krabbadýraaflinn nam 711 tonnum og jókst um 167 tonn frá fyrra ári.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2008. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.


Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.