FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. NÓVEMBER 2007


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum októbermánuði var 2% meiri en í október 2006, sé hann metinn á föstu verði. Það sem af er árinu hefur fiskaflinn dregist saman um 5% á föstu verði miðað við sama tímabil 2006.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 98.264 tonnum í október 2007 samanborið við 90.278 tonn í október 2006.

Botnfiskafli dróst saman um 2.800 tonn frá októbermánuði 2006 og nam 36.500 tonnum. Þorskafli dróst saman um rúmlega 3.600 tonn og karfaaflinn um rúm 800 tonn. Ýsuaflinn jókst um tæplega 3.100 tonn en  ufsaaflinn var nánast óbreyttur.

Flatfiskaflinn dróst saman um 180 tonn milli ára. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 59.700 tonnum sem að stærstum hluta var síld. Aukning í uppsjávarafla nemur rúmum 10.600 tonnum frá októbermánuði 2006. Skel- og krabbadýraafli var 680 tonn samanborið við 350 tonna afla í október 2006.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum.
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.