Fiskafli íslenskra skipa í nóvember var 77.902 tonn sem er 1% meiri afli en í nóvember 2016. Botnfiskaflinn nam rúmum 44 þúsund tonnum og jókst um 12%. Af botnfisktegundum veiddist sem fyrr mest að þorski eða rúm 26.700 þúsund tonn sem er svipaður afli og í nóvember 2016. Tæp 5.700 tonn veiddust af ufsa sem er ríflega tvöfalt meiri afli en á sama tíma í fyrra. Afli uppsjávartegunda nam rúmum 31.600 tonnum og samanstóð af síld og kolmunna. Síldaraflinn nam tæpum 24 þúsund tonnum og dróst saman um 25% en rúm 7.700 tonn veiddust af kolmunna sem er nær tvöfalt meira en í nóvember 2016. Afli flatfisktegunda nam 1.350 tonnum og dróst saman um 12%. Skel- og krabbadýraafli jókst hins vegar um 35%, nam 735 tonnum samanborið við 543 tonn í nóvember 2016.
Heildarafli á 12 mánaða tímabili frá desember 2016 til nóvember 2017 var 1.166 þúsund tonn sem er 10% aukning miðað við sama tímabil ári fyrr.
Verðmæti afla í nóvember metið á föstu verðlagi var 5,4% meira en í nóvember 2016.
Fiskafli | ||||||
Nóvember | Desember-nóvember | |||||
2016 | 2017 | % | 2015-2016 | 2016-2017 | % | |
Fiskafli á föstu verði | ||||||
Vísitala | 84,7 | 89,3 | 5,4 | |||
Fiskafli í tonnum | ||||||
Heildarafli | 77.530 | 77.902 | 1 | 1.060.149 | 1.166.454 | 10 |
Botnfiskafli | 39.542 | 44.188 | 12 | 461.164 | 423.033 | -8 |
Þorskur | 26.715 | 26.719 | 0 | 268.223 | 248.625 | -7 |
Ýsa | 3.188 | 3.474 | 9 | 39.585 | 35.527 | -10 |
Ufsi | 2.757 | 5.697 | 107 | 49.086 | 48.006 | -2 |
Karfi | 5.061 | 6.426 | 27 | 62.933 | 59.239 | -6 |
Annar botnfiskafli | 1.821 | 1.872 | 3 | 41.336 | 31.635 | -23 |
Flatfiskafli | 1.527 | 1.350 | -12 | 24.500 | 21.768 | -11 |
Uppsjávarafli | 35.918 | 31.629 | -12 | 561.580 | 711.342 | 27 |
Síld | 32.004 | 23.888 | -25 | 112.941 | 132.273 | 17 |
Loðna | 0 | 0 | - | 101.089 | 196.832 | 95 |
Kolmunni | 3.914 | 7.741 | 98 | 176.846 | 216.364 | 22 |
Makríll | 0 | 0 | - | 170.699 | 165.873 | -3 |
Annar uppsjávarfiskur | 0 | 0 | - | 5 | 0 | - |
Skel-og krabbadýraafli | 543 | 735 | 35 | 12.818 | 10.276 | -20 |
Annar afli | 0 | 0 | - | 86 | 35 | -60 |
Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.