FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 17. DESEMBER 2007

Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum nóvembermánuði var 1,7% meiri en í nóvember 2006, sé hann metinn á föstu verði. Það sem af er árinu hefur fiskaflinn dregist saman um 4,4% á föstu verði miðað við sama tímabil 2006.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 106.106 tonnum í nóvember 2007 samanborið við 105.713 tonn í nóvember 2006.

Botnfiskafli jókst um tæplega 290 tonn frá nóvembermánuði 2006 og nam 35.900 tonnum. Þorskafli dróst saman um rúmlega 3.700 tonn og karfaaflinn um tæplega 430 tonn. Ýsuaflinn jókst um rúmlega 4.000 tonn og ufsaaflinn um tæplega 420 tonn.

Flatfiskaflinn dróst saman um rúmlega 260 tonn milli ára. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 68.900 tonnum og var eingöngu síld. Aukning í uppsjávarafla nemur tæpum 330 tonnum frá nóvembermánuði 2006. Skel- og krabbadýraafli var 97 tonn samanborið við 58 tonna afla í nóvember 2006.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.