FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 14. APRÍL 2008


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í mars, metinn á föstu verði, var 7,6% meiri en í mars 2007. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 10,7% miðað við sama tímabil 2007, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 169.181 tonnum í mars 2008 samanborið við 162.054 tonn í mars 2007.

Botnfiskafli jókst um tæplega 1.000 tonn frá mars 2007 og nam tæpum 54.200 tonnum. Þorskafli dróst saman um 4.200 tonn, karfaafli jókst um 2.700 tonn og ýsuaflinn um 1.800 tonn.

Afli uppsjávartegunda nam rúmum 112.000 tonnum og jókst um rúm 5.300 tonn frá mars 2007. Loðnuaflinn var 95.600 tonn og jókst um  18.600 tonn en afli kolmunna var rúm 16.800 tonn og dróst saman um 13.200 tonn frá sama tíma 2007. Flatfiskaflinn var 1.800 tonn í mars og jókst um rúm 140 tonn. Skel- og krabbadýraafli var 728 tonn samanborið við 143 tonna afla í mars 2007.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.