FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 17. APRÍL 2007


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum marsmánuði, metinn á föstu verði, var 8,7% minni en í mars 2006. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 3,5% miðað við sama tímabil 2006, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 161.078 tonnum í mars 2007 samanborið við 133.714 tonn í mars 2006.

Botnfiskafli dróst saman um tæplega 7.600 tonn frá marsmánuði 2006 og nam tæpum 53.000 tonnum. Þorskafli dróst saman um rúm 800 tonn, ýsuaflinn dróst saman um rúm 3.300 tonn og ufsaaflinn dróst saman um tæplega 600 tonn.

Flatfiskaflinn dróst saman og var 1.630 tonn. Afli uppsjávartegunda nam rúmum 106.300 tonnum og var allur loðna og kolmunni. Aukning uppsjávarafla nemur  tæpum 36.500 tonnum. Skel- og krabbadýraafli  var 148 tonn samanborið við 530 tonna afla í mars 2006.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum.
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.