FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 17. JÚLÍ 2007


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júnímánuði var 6,4% meiri en í júní 2006, en það sem af er árinu hefur hann dregist saman um 1,6% miðað við sama tímabil 2006, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 111.570 tonnum í júní 2007 samanborið við 135.515 tonn í júní 2006.

Botnfiskafli jókst um rúm  2.900 tonn frá júnímánuði 2006 og nam tæpum 39.900 tonnum. Þorskafli jókst um tæplega 900 tonn, ýsuaflinn jókst um rúm 500 tonn og ufsaaflinn dróst saman um 1.000 tonn.

Flatfiskaflinn var nánast óbreyttur milli ára. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 67.300 tonnum og var að stærstum hluta síld og kolmunni. Samdráttur í uppsjávarafla nemur  tæplega 27.600 tonnum. Skel- og krabbadýraafli var tæplega 2.000 tonn samanborið við tæplega 1.300 tonna afla í júní 2006.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.