FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 14. JÚLÍ 2005

Heildarafli íslenskra skipa¹ í nýliðnum júnímánuði var 153.300 tonn sem er 25.700 tonna minni afli en í júnímánuði 2004 en þá veiddust tæplega 179.100 tonn. Milli júnímánaða 2004 og 2005 dróst verðmæti fiskaflans, á föstu verði ársins 2003, saman um 14,7%. Á fyrri helmingi ársins 2005 hefur verðmæti fiskaflans, á föstu verði ársins 2003, aukist um 1,2% miðað við árið 2004.

Botnfiskafli var tæp 30.200 tonn samanborið við 35.900 tonn í júnímánuði 2004 og dróst því saman um rúmlega 5.700 tonn á milli ára. Þorskafli var tæplega 12.200 tonn en um 14.600 tonn bárust á land í fyrra og er það samdráttur um rúm 2.400 tonn. Af ýsu veiddust tæp 3.700 tonn en í júní 2004 var ýsuaflinn ríflega 2.900 tonn. Úthafskarfaafli var 3.500 tonn í ár en tæp 9.500 tonn í fyrra og er það tæplega 6.000 tonna minni afli.

Flatfiskafli var 4.100 tonn og dróst saman um 145 tonn frá júnímánuði 2004. Þar af var grálúðuaflinn tæp 2.700 tonn og af skarkola var landað yfir 600 tonnum.

Loðnuaflinn í nýliðnum júnímánuði var tæp 900 tonn en í fyrra bárust 7.900 tonn á land í júní. Af kolmunna bárust á land í 80.200 tonn en í fyrra nam aflinn 91.400 tonnum og nemur samdrátturinn 11.200 tonnum. Síldaraflinn var tæp 36.300 tonn í ár en það er um 1.500 tonna aukning frá júnímánuði 2004.

Skel- og krabbadýraafli heldur áfram að dragast saman, var tæplega 1.700 tonn sem er 3.100 tonna minni afli en í júnímánuði 2004. Rækjuaflinn var 3.100 tonn og dróst saman um ríflega 2.000 tonn. Engin kúfiskveiði var stunduð en í fyrra var aflinn í júní 1.200 tonn, hins vegar varð aukning í humaraflanum um 85 tonn en í júní í ár var aflinn um 480 tonn. Veruleg aukning hefur einnig orðið í beitukóngsafla sem nam 108 tonnum í júnímánuði miðað við 28 tonn í fyrra.

Heildarafli íslenskra skipa á fyrri helmingi ársins 2005 var 1.159.500 tonn og er það 103.300 tonna meiri afli en á sama tímabili árið 2004. Botnfiskafli var rúmlega 269.500 tonn sem er tæplega 15.000 tonna aukning. Þorskaflinn var 120.700 tonn og dróst saman um tæp 6.800 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn var um 52.500 tonn sem er aukning um tæp 10.800 tonn. Ufsaaflinn var tæplega 29.100 tonn og hafði aukist um 4.500 tonn og karfaaflinn var orðinn tæp 37.100 tonn, sem er aukning um 8.800 tonn. Í júnímánuði 2004 var úthafskarfaaflinn kominn yfir 13.100 tonn en á fyrri helmingi ársins 2005 er aflinn rúm 8.500 tonn og hefur því dregist saman um 4.600 tonn.

Flatfiskaflinn var 15.600 tonn, þar af tæp 7.400 tonn af grálúðu og um 3.500 tonn af skarkola. Af skrápflúru hafa borist tæp 800 tonn á land sem er tæpum 900 tonnum minni afli en í fyrra.

Loðnuaflinn nam 595.200 tonnum sem er tæplega 107.200 tonna aukning milli ára. Kolmunnaaflinn var orðinn 224.100 tonn og hefur aukist um 3.100 tonn. Af síld höfðu borist á land 49.000 tonn en 59.000 tonn á sama tíma í fyrra.

Skel- og krabbadýraaflinn var 5.900 tonn samanborið við 16.100 tonna afla árið 2004. Hefur rækjuafli dregist saman um 6.900 tonn og enginn kúfiskur hefur enn borist á land það sem af er árinu.

¹Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.