FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 13. ÁGÚST 2010


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júlímánuði, metinn á föstu verði, var 13,2% minni en í júlí 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 13% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 116.820 tonnum í júlí 2010 samanborið við 160,132 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli dróst saman um rúm 6.100 tonn frá júlí 2009 og nam 27.000 tonnum. Þar af nam þorskaflinn rúmum 8.700 tonnum, sem er samdráttur um 700 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam 3.500 tonnum, sem er um 1.600 tonnum minni afli en í júlí 2009. Um 5.400 tonn veiddust af ufsa, sem er um 700 tonnum minni afli en í júlí 2009. Karfaaflinn jókst um tæp 200 tonn og nam um 2.800 tonnum. Um 3.300 tonna samdráttur var í öðrum botnfiskafla milli ára og nam hann tæpum 6.600 tonnum. Þann samdrátt má að mestu rekja til minni veiða á úthafskarfa en í júlí árið áður.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 86.000 tonnum, sem er um 37.000 tonnum minni afli en í júlí 2009. Af uppsjávartegundum veiddust rúm 53.000 tonn af makríl og tæp 33.000 tonn af síld.

Flatfiskaflinn var tæp 2.200 tonn í júlí 2010 samanborið við 3.100 tonn árið áður. Skel- og krabbadýraaflinn nam tæpum 1.500 tonnum.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum.
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2008. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.