FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 13. ÁGÚST 2008


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í júlí, metinn á föstu verði, var 0,2% meiri en í júlí 2007. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 8,0% miðað við sama tímabil 2007, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 152.944 tonnum í júlí 2008 samanborið við 116.228 tonn í júlí 2007.

Botnfiskafli dróst saman um 2.800 tonn frá júlí 2007 og nam rúmum 30.600 tonnum. Þorskaflinn dróst saman um tæp 1.300 tonn, ýsuafli um tæp 1.300 tonn og afli karfa um tæp 1.500 tonn. Ufsaaflinn jókst um tæp 3.800 tonn frá því í júlí 2007.

Afli uppsjávartegunda var rúm 78.700 tonn og var að stærstum hluta síld og makríll. Aukning í uppsjávarafla nemur rúmlega 39.300 tonnum. Munar þar miklu um rúm 63.200 tonn af makríl á móti 21.500 tonna afla í júlí 2007. Síldaraflinn nam rúmum 54.700 tonnum og jókst um rúm 6.800 frá júlí 2007. Verulegur samdráttur var í kolmunnaafla þar sem einungis 63 tonn voru veidd í júlí, samanborið við rúm 9.300 tonn í júlí árið 2007. Flatfiskaflinn var tæp 2.100 tonn í júlí sem er sambærilegt við fyrra ár. Skel- og krabbadýraafli var tæp 2.200 tonn sem er sambærilegt afla júlímánaðar 2007.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

 

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.