FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. ÁGÚST 2006

Heildarafli íslenskra skipa¹ í nýliðnum júlímánuði nam alls 87.547 tonnum sem er nánast það sama og í júlí í fyrra en þá var aflinn 87.647 tonn. Vegna breyttrar samsetningar aflans nemur aukning hans á föstu verði hins vegar 5,2%. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 7,9% miðað við sama tímabil 2005, sé hann metinn á föstu verði. Aflinn var 875.959 tonn fyrstu sjö mánuði ársins samanborið við 1.254.599 tonn árið 2005.

Botnfiskafli síðastliðinn júlímánuð nam rétt rúmum 38.000 tonnum sem er tæplega 7.000 tonnum meiri afli en í sama mánuði í fyrra. Þorskafli var svipaður og í fyrra en ýsuaflinn jókst um 1.600 tonn og afli ufsa um 4.500 tonn.

Uppsjávaraflinn nam 47.000 tonnum en þar af var síldaraflinn 34.000 tonn. Kolmunnaaflinn var hins vegar helmingi minni í júlí í ár en í fyrra.

Það sem af er árinu nemur afli íslenskra skipa tæpum 876.000 tonnum sem telst vera tæplega 379.000 tonnum minni afli en á sama tímabili árið 2005.

¹Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.