Landaður afli í febrúar 2026 var rúm 137 þúsund tonn. Þar af nam loðnuaflinn tæpum 86 þúsund tonnum. Botnfiskafli jókst um 6% á milli ára og flatfiskafli jókst um 50%.
Á tímabilinu mars 2025 til febrúar 2026 var landað samtals 1.096 þúsund tonnum sem er 11% meiri afli en á tímabilinu mars 2024 til febrúar 2025. Uppsjávarafli jókst um 22% miðað við fyrra tímabilið á meðan flatfiskafli dróst saman um 13% og botnfiskafli um 1%.