FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. MARS 2010


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum febrúarmánuði, metinn á föstu verði, var 8,5% minni en í febrúar 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 8,7% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 106.704 tonnum í febrúar 2010 samanborið við 99.696 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli dróst saman um tæp 1.800 tonn frá febrúar 2009 og nam 41.400 tonnum. Þar af nam þorskaflinn rúmum 20.500 tonnum, sem er aukning um 1.100 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam tæpum 6.600 tonnum sem er um 2.400 tonnum minni afli en í febrúar 2009. Karfaaflinn dróst saman  um 500 tonn samanborið við febrúar 2009 og nam tæpum 6.100 tonnum. Um 3.000 tonn veiddust af ufsa sem er um 400 tonnum minni afli en í febrúar 2009.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 63.000 tonnum sem er um 8.400 tonnum meiri afli en í febrúar 2009. Aukningu í uppsjávarafla má rekja til aukningar í loðnuafla en 55.000 tonn veiddust af loðnu í febrúar samanborið við 15.000 tonna afla í febrúar 2009. Síldarafli nam 2.000 tonnum og dróst saman um tæp 8.300 tonn frá fyrra ári. Afli gulldeplu nam 5.700 tonnum sem er samdráttur um 22.300 tonn miðað við febrúar 2009.

Flatfiskaflinn var rúm 1.900 tonn í febrúar 2010 og dróst saman um 129 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 412 tonnum samanborið við um 61 tonna afla í febrúar 2009.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2008. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.