FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 13. MARS 2008


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum febrúarmánuði, metinn á föstu verði, var 27,1% minni en í febrúar 2007. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 22% miðað við sama tímabil 2007, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 85.136 tonnum í febrúar 2008 samanborið við 238.125 tonn í febrúar 2007.

Botnfiskafli dróst saman um tæplega 3.800 tonn frá febrúarmánuði 2007 og nam rúmum 40.700 tonnum. Þorskafli dróst saman um 7.200 tonn, ýsuaflinn jókst um 2.500 tonn og ufsaaflinn um 1.500 tonn.

Afli uppsjávartegunda nam rúmum 43.000 tonnum og dróst saman um rúm 148.000 tonn frá febrúar 2007. Loðnuaflinn var 30.900 tonn og dróst saman um rúm 158.000 tonn en afli kolmunna var rúm 12.100 tonn og jókst um 10.000 tonn frá sama tíma 2007. Flatfiskaflinn var 1.300 tonn í febrúar og dróst saman um rúm 800 tonn. Skel- og krabbadýraafli var 46 tonn samanborið við 24 tonna afla í febrúar 2007.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum.
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.