FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. MARS 2007


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa¹ í nýliðnum febrúarmánuði, metinn á föstu verði, var 5,3% minni en í febrúar 2006. Það sem af er árinu er aflinn óbreyttur miðað við sama tímabil 2006, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 229.596 tonnum í febrúar 2007 samanborið við 214.279 tonn í febrúar 2006.

Botnfiskafli dróst saman um rúmlega 4.600 tonn frá febrúarmánuði 2006 og nam tæpum 44.500 tonnum. Þorskafli dróst saman um 2.700 tonn, ýsuaflinn jókst um 900 tonn og ufsaaflinn dróst saman um rúmlega 1.000 tonn.

Flatfiskaflinn dróst saman og var 2.150 tonn. Afli uppsjávartegunda nam rúmum 182.900 tonnum og var allur loðna. Aukning uppsjávarafla nemur  tæpum 20.900 tonnum. Skel- og krabbadýraafli  var 24 tonn samanborið við 478 tonna afla í febrúar 2006.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum.
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

¹Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.