FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. MARS 2005

Heildarafli íslenskra skipa¹ í nýliðnum febrúarmánuði var tæplega 298.100 tonn sem er um 28.900 tonnum meiri afli en í febrúarmánuði 2004 en þá veiddust 269.100 tonn. Milli febrúarmánaða 2004 og 2005 jókst verðmæti fiskaflans, á föstu verði ársins 2003, um 11% og það sem af er árinu 2005 jókst það um 16,5% miðað við árið 2004.
     Botnfiskafli var 50.700 tonn samanborið við tæp 42.500 tonn í febrúarmánuði 2004 og jókst því um tæplega 8.300 tonn á milli ára. Þorskafli var 25.900 tonn en 23.100 tonn bárust á land í febrúarmánuði 2004 og er það aukning um rúm 2.800 tonn. Af ýsu veiddust rúmlega 9.900 tonn og er það tæpra 1.500 tonna aukning frá fyrra ári. Ufsaafli var 5.100 tonn og er það nærri 1.500 tonnum meira en á árinu 2004. Karfaafli var 6.100 tonn sem er rúmum 1.900 tonnum meiri afli en í febrúar árið áður.
     Flatfiskafli var 2.000 tonn og minnkaði um tæplega 400 tonn frá febrúarmánuði 2004. Mestur varð grálúðuaflinn eða um 1.100 tonn en hafði þó dregist saman um rúm 200 tonn frá árinu áður. Skrápflúruaflinn var rúm 100 tonn og dróst saman um tæplega 200 tonn frá árinu áður. Af skarkola veiddust 350 tonn.
      Af loðnu veiddust 243.800 tonn en í febrúarmánuði 2004 var loðnuaflinn 222.100 tonn og nemur aukningin 21.700 tonnum. Síldaraflinn var 1.400 tonn í mánuðinum en í fyrra barst engin síld á land í febrúar.
     Skel- og krabbadýraafli var tæp 100 tonn samanborið við tæplega 2.100 tonna afla í febrúar 2004. Rækjuaflinn var tæp 100 tonn og dróst saman um 1.300 tonn. Engin kúfiskur hefur borist á land það sem af er árinu en rúm 700 tonn veiddust af kúfiski í febrúar í fyrra. Engin hörpudiskveiði var í ár frekar en fyrra árið.
     Heildarafli íslenskra skipa það sem af er árinu 2005 var 533.700 tonn og er það 158.100 tonnum meiri afli en á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2004. Botnfiskafli var 83.600 tonn sem er 10.700 tonnum meiri afli en á sama tímabili 2004. Þorskaflinn var 42.600 tonn og er það aukning um 3.600 tonn. Ýsuaflinn var rúm 17.700 tonn sem er aukning um 3.400 tonn og þá var ufsaaflinn 9.300 tonn sem var 2.600 tonnum meiri afli en á sama tímabili árið 2004.
     Flatfiskaflinn var 2.900 tonn þar af voru 1.300 tonn af grálúðu, tæp 700 tonn af skarkola og rúm 200 tonn af skrápflúru.
Loðnuaflinn var orðinn 445.200 tonn sem er aukning í magni um 158.600 tonn miðað við sama tímabil í fyrra. Hins vegar höfðu tæp 1.800 tonn af síld borist á land það sem af er árinu samanborið við rúm 9.300 tonn í fyrra.
     Skel- og krabbadýraaflinn var tæp 200 tonn samanborið við tæplega 3.000 tonna afla árið 2004. Mestu munar um 1.600 tonna samdrátt í rækjuafla.

¹Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.