FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. JANÚAR 2008


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í desember var 11% minni en í desember 2006, sé hann metinn á föstu verði. Árið 2007 dróst fiskaflinn saman um 3,1% á föstu verði miðað við árið 2006.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 77.295 tonnum í desember 2007 samanborið við 71.919 tonn í desember 2006.

Botnfiskafli dróst saman um rúmlega 8.400 tonn frá desember mánuði 2006 og nam rúmum 24.900 tonnum. Þorskafli dróst saman um rúm 6.900 tonn, ufsaafli um tæp 1.400 tonn og karfaafli um tæp 880 tonn. Ýsuafli jókst um rúm 1.690 tonn.

Flatfiskafli í desember dróst saman um rúmlega 330 tonn milli ára. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 50.900 tonnum. Síldarafli var tæp 50.400 tonn og jókst um rúm 14.200 tonn frá desember 2006. Kolmunnaafli dróst saman um tæp 120 tonn frá fyrra ári, var um 480 tonn miðað við tæp 600 tonn í desember 2006. Aukning í uppsjávarafla nemur rúmum 14.000 tonnum frá desember 2006. Skel- og krabbadýraafli var 133 tonn samanborið við 62 tonna afla í desember 2006.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum.
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.