FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. JANÚAR 2007


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa¹ í nýliðnum desembermánuði, metinn á föstu verði, var 3% meiri en í desember 2005. Á árinu 2006 hefur aflinn dregist saman um 4,7% miðað við árið 2005, sé hann metinn á föstu verði.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 71.857 tonnum í desember 2006 samanborið við 72.661 tonn í desember í fyrra. Heildarafli íslenskra skipa á árinu 2006 nemur rúmum 1.323.000 tonnum og er það tæplega 346.000 tonna minni afli en á á árinu 2005.

Botnfiskafli dróst saman um tæp 2.400 tonn frá desembermánuði 2005 og nam tæplega 33.300 tonnum. Þorskafli dróst saman um tæp 700 tonn, ýsuaflinn stóð nánast í stað og ufsaaflinn dróst saman um rúmlega 1.600 tonn.

Flatfiskaflinn dróst lítillega saman og var rúm 1.700 tonn. Afli uppsjávartegunda nam rúmum 36.800 tonnum og var að stærstum hluta  síldarafli. Aukning uppsjávarafla nemur tæpum 2.200 tonnum. Skel- og krabbadýraafli  var 62 tonn samanborið við 550 tonna afla í desember 2005.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum.
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.  

¹Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.