FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 14. JANÚAR 2005

Heildarafli íslenskra skipa¹ í nýliðnum desembermánuði var 80.600 tonn og er það 9.000 tonnum minni afli en í desembermánuði 2003 en þá var aflinn 89.600 tonn. Breytt aflasamsetning á milli desembermánaða 2003 og 2004 gerir það að verkum að verðmæti fiskaflans, á föstu verði ársins 2002, dregst saman um 4,2%. Á árinu 2004 hefur verðmæti fiskaflans, á föstu verði ársins 2002, verið nánast óbreytt miðað við árið 2003.
     Botnfiskafli var 33.700 tonn samanborið við 32.600 tonn í desembermánuði 2003 og nemur aukningin 1.100 tonnum á milli ára. Þorskafli var 16.100 tonn en 16.800 tonn bárust á land í desember 2003 og því minnkaði þorskaflinn um rúm 700 tonn á milli ára. Af ýsu veiddust 7.200 tonn en í fyrra veiddust 6.100 tonn og nemur aukning ýsuaflans því 1.100 tonnum. Ufsaafli var 5.700 tonn í desembermánuði í ár en var 4.600 tonn í fyrra og er það rúmlega 1.100 tonna aukning á milli ára.
     Flatfiskafli var 1.600 tonn og minnkaði um tæplega 900 tonn frá desembermánuði 2003. Af grálúðu veiddust um 1.000 tonn en í desember mánuði árið 2003 var grálúðuaflinn rúm 1.600 tonn. Af skarkola veiddust tæp 300 tonn og tæplega 200 tonn veiddust af sandkola.
     Afli uppsjávartegunda nam 44.600 tonnum og var síldaraflinn 25.500 tonn, kolmunnaaflinn 12.800 tonn og loðnuaflinn 6.300 tonn. Í samanburði við afla desembermánaðar 2003 þá minnkaði síldaraflinn um 1.000 tonn, kolmunnaaflinn dróst saman um 13.400 tonn og engum loðnuafla var landað í desember 2003.
     Skel- og krabbadýraafli var tæplega 800 tonn samanborið við 1.800 tonna afla í desember 2003. Mestur var samdrátturinn í rækjuaflanum eða rúmlega 800 tonn.
     Árið 2004 nam heildarafli íslenskra fiskiskipa 1.724.000 tonnum og er það samdráttur um 256.000 tonn frá árinu 2003. Botnfiskafli var 491.000 tonn og hefur því aukist um 26.400 tonn frá fyrra ári. Flatfiskafli dróst saman um 5.700 tonn og uppsjávarafli dróst einnig saman eða sem nam 263.000 tonnum. Mestur var samdrátturinn í loðnuafla eða 156.000 tonn, hann var 25.600 tonn í síldarafla og 81.700 tonn í kolmunnaafla. Þá var skel- og krabbadýraaflinn 13.600 tonnum minni árið 2004 en á árinu 2003. Samdráttur varð mestur í rækjuafla 9.100 tonn og í kúfiskafla 4.200 tonn. Tæplega 800 tonna samdráttur var einnig í hörpudiskafla vegna veiðibanns árið 2004.


 

¹Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.