FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 13. MAÍ 2009


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum aprílmánuði, metinn á föstu verði, var 16,3% minni en í apríl 2008. Það sem af er árinu hefur aflinn hins vegar aukist um 7,8% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn í apríl 2009 var 94.828 tonn samanborið við 130.871 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli dróst saman um tæp 11.000 tonn frá apríl 2008 og nam rúmum 38.000 tonnum. Þar af var þorskaflinn um 16.000 tonn líkt og árið áður og karfaaflinn rúm 6.000 tonn, sem var samdráttur um 3.400 tonn milli ára. Ýsuaflinn dróst saman um 5.000 tonn á milli ára og nam um 6.800 tonnum, og  ufsaaflinn dróst saman um 2.200 tonn samanborið við apríl 2008 og nam um 3.500 tonnum.

Afli uppsjávartegunda nam rúmum 53.000 tonnum sem er um 24.000 tonnum minni afli en í apríl 2008. Nær eingöngu veiddist kolmunni af uppsjávartegundum í mánuðinum, líkt og árið áður.

Flatfiskaflinn var rúm 1.600 tonn í apríl og dróst saman um tæp 500 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 644 tonnum samanborið við 1.465 tonna afla í apríl 2008.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.