FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. MAÍ 2007


Afli á föstu verði

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum aprílmánuði, metinn á föstu verði, var 10,1% meiri en í apríl 2006. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 0,5% miðað við sama tímabil 2006, sé hann metinn á föstu verði.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 120.663 tonnum í apríl 2007 samanborið við 84.383 tonn í apríl 2006.

Botnfiskafli jókst um rúm 4.100 tonn frá aprílmánuði 2006 og nam tæpum 49.500 tonnum. Þorskafli dróst saman um rúm 400 tonn, ýsuaflinn jókst um tæp 2.100 tonn og ufsaaflinn jókst um tæplega 400 tonn.

Flatfiskaflinn dróst saman og var rúm 1.660 tonn. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 68.300 tonnum og var allur kolmunni. Aukning uppsjávarafla nemur rúmum 32.300 tonnum. Skel- og krabbadýraafli var rúmlega 1.200 tonn samanborið við tæplega 1.050 tonna afla í apríl 2006.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum.
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.