FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 18. MAÍ 2005

Heildarafli íslenskra skipa¹ í nýliðnum aprílmánuði var tæp 112.000 tonn  sem er 30.700 tonnum meiri afli en í aprílmánuði 2004. Milli aprílmánaða 2004 og 2005 dróst verðmæti fiskaflans hins vegar saman, á föstu verðlagi ársins 2003, um 2,8% en það sem af er árinu hefur það aukist um 2,5% frá fyrra ári.

Botnfiskafli var tæp 49.700 tonn samanborið við 46.800 tonn í aprílmánuði 2004 og jókst því um tæplega 2.900 tonn á milli ára. Þorskafli var 20.400 tonn en 21.500 tonn bárust á land í aprílmánuði 2004 og er það samdráttur um 1.100 tonn. Af ýsu veiddust rúm 9.900 tonn en í apríl í fyrra veiddust tæplega 8.500 tonn og nemur aukning ýsuaflans tæpum 1.500 tonnum. Ufsaafli var 6.100 tonn og er það 800 tonnum meira en í aprílmánuði 2004. Karfaafli var rúm 9.000 tonn en það er ríflega 1.400 tonna aukning milli ára.

Flatfiskafli var tæplega 2.300 tonn og jókst um rúm 300 tonn frá aprílmánuði 2004. Mestur var grálúðuaflinn eða tæp 1.100 tonn en í apríl í fyrra var grálúðuaflinn rúm 700 tonn. Af skarkola var landað rúmum 300 tonnum og ríflega 200 af skrápflúru.

Kolmunnaaflinn í nýliðnum aprílmánuði var 58.500 tonn en í fyrra bárust 29.500 tonn og nemur aukning kolmunnaflans milli ára tæpum 29.000 tonnum. Rúm 200 tonn bárust á land af loðnu en engri síld var landað.

Skel- og krabbadýraafli var tæp 1.300 tonn samanborið við 3.000 tonna afla í apríl 2004. Af rækju veiddust tæplega 1.000 tonn samanborið við 2.100 tonn í fyrra. Þá var humaraflinn 323 tonn en var 178 tonn í aprílmánuði í fyrra. Engin kúfiskveiði var í apríl en í fyrra bárust tæp 700 tonn á land í aprílmánuði.

Heildarafli íslenskra skipa á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2005 var 866.100 tonn og er það 144.300 tonna meiri afli en á árinu 2004. Botnfiskafli var tæp 195.000 tonn, 13.200 tonnum meira en á sama tímabili í fyrra. Þorskaflinn var rúm 91.500 tonn og er það samdráttur sem nemur 3.500 tonnum. Ýsuaflinn var ríflega 39.600 tonn sem er aukning um 6.600 tonn. Ufsaaflinn var orðinn tæp 20.900 tonn og hafði aukist um 3.500 tonn og karfaaflinn tæp 27.600 tonn sem er aukning um 5.700 tonn frá fyrra ári. Flatfiskaflinn var rúm 7.800 tonn og hafði dregist saman um tæp 1.000 tonn. Grálúðuaflinn var 3.300 tonn, skarkolaaflinn rúm 1.800 tonn og skrápflúruaflinn rúm 700 tonn. Loðnuaflinn nam 595.300 tonnum sem er aukning um 115.200 tonn frá árinu 2004. Kolmunnaaflinn var orðinn 64.100 tonn og hafði aukist um 30.700 tonn milli ára. Skel- og krabbadýraaflinn var tæplega 2.300 tonn samanborið við 8.400 tonna afla árið 2004. Mestu munar um ríflega 4.300 tonna samdrátt í rækjuafla og rúmlega 1.900 tonna samdrátt í kúfiskafla.

¹Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.