FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. SEPTEMBER 2010


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum ágústmánuði, metinn á föstu verði, var 7,5% meiri en í ágúst 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 10,7% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 116.026 tonnum í ágúst 2010 samanborið við 112.500 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli jókst um rúm 2.400 tonn frá ágúst 2009 og nam 34.000 tonnum. Þar af nam þorskaflinn tæpum 12.300 tonnum, sem er samdráttur um 355 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam 6.500 tonnum, sem er um 500 tonnum meiri afli en í ágúst 2009. Um 7.700 tonn veiddust af ufsa, sem er um 1.800 tonnum meiri afli en í ágúst 2009. Karfaaflinn jókst um tæp 1.100 tonn og nam um 4.000 tonnum. Tæplega 400 tonna aukning var í öðrum botnfiskafla milli ára og nam hann rúmum 3.600 tonnum.

Afli uppsjávartegunda nam 78.900 tonnum, sem er um 1.000 tonnum meiri afli en í ágúst 2009. Af uppsjávartegundum veiddust tæp 46.000 tonn af síld og rúm 31.700 tonn af makríl.

Flatfiskaflinn var tæp 1.700 tonn í ágúst 2010 samanborið við 2.000 tonn árið áður. Skel- og krabbadýraaflinn nam tæpum 1.300 tonnum.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2008. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.