FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. SEPTEMBER 2008


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í júlí, metinn á föstu verði, var 8,6% meiri en í ágúst 2007. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 6,1% miðað við sama tímabil 2007, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 142.002 tonnum í ágúst 2008 samanborið við 89.944 tonn í ágúst 2007.

Botnfiskafli dróst saman um 2.300 tonn frá ágúst 2007 og nam rúmum 36.900 tonnum. Ýsuafli dróst saman um tæp 3.500 tonn og þorskafli um tæp 1.700 tonn. Ufsaafli jókst hinsvegar um rúm 2.000 tonn og karfaafli um rúm 400 tonn miðað við ágúst 2007.

Afli uppsjávartegunda nam rúmum 104.300 tonnum og var að stærstum hluta síld og makríll. Aukning í uppsjávarafla nemur tæplega 50.600 tonnum frá því í ágúst 2007. Síldaraflinn nam 63.100 tonnum og jókst um rúm 31.800 tonn frá ágúst 2007. Afli makríls nam 40.300 tonnum í ágúst og jókst um rúm 26.100 tonn frá fyrra ári. Rúmlega 800 tonn voru veidd af kolmunna samanborið við rúm 5.000 tonn í ágúst 2007. Flatfiskaflinn var tæp 1.800 tonn í ágúst og dróst saman um tæp 200 tonn frá fyrra ári. Veruleg aukning var í skel- og krabbadýraafla, sem nam 1.150 tonnum og jókst um tæp 700 tonn miðað við ágúst 2007.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.


Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.