FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 19. DESEMBER 2011

Vinsamlega athugið að þessari fréttatilkynningu hefur verið breytt frá upprunalegri útgáfu. fréttatilkynnin var gefin út í staðinn.

Afli erlendra ríkja við Ísland var rúm 19 þúsund tonn árið 2010 miðað við tæp 11 þúsund tonn 2009. Færeyingar stunduðu einar þjóða veiðar hér við land á síðasta ári og mest var veitt af loðnu eða rúm 7 þúsund tonn.

Heimsaflinn var tæpar 90 milljónir tonna árið 2009 og dróst saman um 809 þúsund tonn frá árinu 2008. Kyrrahafið gaf mestan afla og stærsta einstaka fisktegundin var Perúansjósa. Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2009 en Íslendingar voru í 19. sæti heimslistans.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.