FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 20. DESEMBER 2011

Frétt um afla erlendra ríkja við Ísland 2010 og heimsafla 2009 frá 19. desember 2011 hefur verið leiðrétt en í fréttinni var stuðst við rangar upplýsingar um afla erlendra ríkja við Ísland.  Fréttatilkynning er því birt hér leiðrétt.

Afli erlendra ríkja við Ísland var tæplega 31 þúsund tonn árið 2010 miðað við rúm 11 þúsund tonn 2009. Færeyingar stunduðu aðallega veiðar hér við land á síðasta ári og mest var veitt af loðnu eða tæp 19 þúsund tonn.

Heimsaflinn var tæpar 90 milljónir tonna árið 2009 og dróst saman um 809 þúsund tonn frá árinu 2008. Kyrrahafið gaf mestan afla og stærsta einstaka fisktegundin var Perúansjósa. Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2009 en Íslendingar voru í 19. sæti heimslistans.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.