FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 21. DESEMBER 2010

Út er komið ritið Afli erlendra ríkja við Ísland 2009 og heimsaflinn 2008. Í ritinu kemur meðal annars fram að afli erlendra ríkja við Ísland var tæp 11 þúsund tonn árið 2009 miðað við tæp 59 þúsund tonn 2008. Færeyingar stunduðu aðallega veiðar hér við land á síðasta ári og mest var veitt af síld.

Heimsaflinn var tæpar 90 milljónir tonna árið 2008 og dróst saman um 158 þúsund tonn frá árinu 2007. Kyrrahafið gaf mestan afla og stærsta einstaka fisktegundin var Perúansjósa. Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2008 en Íslendingar voru í 18. sæti heimslistans.

Afli erlendra ríkja við Ísland 2009 og heimsaflinn 2008 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.