FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 11. DESEMBER 2007

Út er komið ritið Afli erlendra ríkja við Ísland 2006 og heimsaflinn 2005.

Í ritinu kemur m.a. fram að afli erlendra ríkja við Ísland minnkaði úr 114 þúsund tonnum 2005 í rúmlega 54 þúsund tonn 2006. Uppistaða aflans var sem fyrr loðna. Færeyingar veiddu mest erlendra þjóða hér við land 2006 en Norðmenn árið 2005.

Heimsaflinn var 93 milljónir tonna árið 2005 og minnkaði um 1,1 milljón frá árinu 2004. Kyrrahafið gaf mestan afla og stærsta einstaka fisktegundin var Perúansjósa. Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2005 en Íslendingar voru í 14. sæti heimslistans, í öðru sæti fiskveiðiþjóða á Norðaustur-Atlantshafi og í 8. sæti veiðiþjóða á Norðvestur-Atlantshafi.

Afli erlendra ríkja við Ísland 2006 og heimsafli 2005 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.