FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 30. ÁGÚST 2012

Út er komið ritið Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2011. Í ritinu kemur m.a. fram að árið 2011 var afli íslenskra skipa tæp 1.149 þúsund tonn, 85 þúsund tonnum meiri en árið 2010. Aflaverðmæti nam tæpum 154 milljörðum króna og jókst um 15,7% frá fyrra ári, eða um 3,2% ef mælt er á föstu verði. Stærsti hluti afla íslenskra fiskiskipa var unninn á Austurlandi, mest uppsjávarafli sem landað var þar. Stærsti hluti botnfiskaflans var unninn á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum eða 46%. Af þorskaflanum fór mest í landfrystingu og makrílaflinn fór að langstærstum hluta annað hvort í landfrystingu eða var sjófrystur. Verðmæti aukaafurða sem féllu til við vinnslu fiskaflans nam 3,7 milljörðum króna á árinu 2011 og jókst um 15,8% frá árinu áður. Verðmæti aukaafurða telst ekki með í heildaraflaverðmæti.

Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2011 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.