FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 07. ÁGÚST 2009

Árið 2008 var afli íslenskra skipa rúm 1.283 þúsund tonn, 113 þúsund tonnum minni en árið 2007. Aflaverðmæti nam rúmum 99 milljörðum króna og jókst um 24% frá fyrra ári, en var 2,1% minna mælt á föstu verði. Stærsti hluti afla íslenskra fiskiskipa var unninn á Austurlandi, mest uppsjávarafli sem landað var þar. Stærsti hluti botnfiskaflans var unninn á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum eða rúm 40%. Af þorskaflanum fór mest í salt en stærstur hluti ýsuaflans var frystur í landi.

Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2008 - Hagtíðindi

Talnaefni:
     Afli og verðmæti
     Ráðstöfun afla

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.