FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. DESEMBER 2023

Landaður afli í nóvember var tæplega 88 þúsund tonn sem er 24% meiri afli en í nóvember 2022. Uppsjávarafli var rúmlega 48 þúsund tonn og jókst um 66% á meðan botnfiskafli var um 38 þúsund tonn og dróst saman um 5%.

Aflamagn á 12 mánaða tímabilinu frá desember 2022 til nóvember 2023 var 1.380 þúsund tonn sem er 8% minni afli en á 12 mánaða tímabili ári áður.

Tölur um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.