FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 13. JANÚAR 2023

Heildarafli ársins 2022 var tæplega 1.418 þúsund tonn sem er 22% meiri afli en árið 2021. Um tveir þriðju aflans á árinu var uppsjávarafli. Þar af var loðna 450 þúsund tonn, kolmunni um 192 þúsund tonn og síld 184 þúsund tonn.

Botnfiskafli árið 2022 var rúmlega 434 þúsund tonn og þar af var þorskaflinn tæp 244 þúsund tonn, ufsi um 62 þúsund tonn og ýsa 57 þúsund tonn. Flatfiskafli var tæplega 22 þúsund tonn árið 2022, sem er 13% samdráttur frá fyrra ári, og skelfiskafli var rúmlega 6 þúsund tonn, 3% samdráttur samanborið við árið 2021.

Aflamagn í desember 2022 var rúm 48 þúsund tonn sem er 62% minni afli en í desember 2021. Munar þar mestu um að uppsjávarafli fór úr 91 þúsund tonnum í desember 2021 í 19 þúsund tonn í desember 2022. Botnfiskafli í mánuðinum var 28 þúsund tonn og dróst saman um 18%. Þar af var þorskaflinn 17,2 þúsund tonn sem er 20% minna en í desember 2021.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.