FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. SEPTEMBER 2023

Landaður afli í ágúst var 114,5 þúsund tonn sem er 10% meiri afli en í ágúst 2022. Botnfiskafli var 32 þúsund tonn sem er 3% aukning á milli ára. Uppsjávarafli var rúm 78 þúsund tonn og jókst um 14%, sem stafaði aðallega af auknum makrílveiðum.

Heildarafli á 12 mánaða tímabiliinu frá september 2022 til ágúst 2023 var 1.370 þúsund tonn sem er 9% minni afli en landað var á sama 12 mánaða tímabili árið á undan.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.