FRÉTT MIÐLUN 21. APRÍL 2008

Hagstofa Íslands sendir nú frá sér tölur um bókaútgáfu áranna 1999–2006 í tilefni af alþjóðlegum degi bókarinnar, 23. apríl. Á árinu 2006 komu út 1.419 titlar bóka (að meðtöldum ritlingum, 5–48 síður). Það jafngildir 4,6 bókum á hverja 1.000 íbúa. Á næstliðnum árum hefur útgefnum bókum fækkað nokkuð, eða um 275 frá því að flestar bækur komu út árið 2000. Það ár voru sex bækur gefnar út á hverja 1.000 íbúa (sjá Myndir 1 og 2).

Mynd 1. Útgefnar bækur 1999-2006

Mynd 2. Útgefnar bækur á 1.000 íbúa 1999-2006 

Langflestar þeirra bóka sem gefnar eru út ár hvert eru íslensk höfundarverk, rituð á íslensku, eða fast að því þrjár af hverjum fjórum útgáfum. Hlutur þýðinga hefur þó aukist jafnt og þétt á árabilinu. Hlutur þýðinga nam 22 af hundraði árið 1999 samanborið við 27 af hundraði árið 2006. Þýðingar úr ensku eru langsamlega flestar. Sjö af hverjum tíu þýddum bókum sem út voru gefnar árið 2006 voru þýðingar á bókum úr ensku. Af öllum þýðingum árið 1999 voru útgáfur bóka þýddra úr ensku um 62 prósent á móti tæpum 69 prósentum árið 2006. Sömu tilhneigingar gætir varðandi uppruna bókmenntaþýðinga. Hlutfall þýðinga úr ensku jókst úr 68 prósentum upp í 74 prósent á árabilinu 1999–2006.

Árið 2006 skiptist bókaútgáfan þannig að af hverjum 100 útgefnum titlum voru um 15 þeirra fyrir börn og unglinga, fimm kennslu- og námsbækur og 80 um annað efni (sjá Mynd 3). Hlutur bóka fyrir börn og ungmenni hefur aukist nær samfellt frá 1999, eða úr tæpum tíu af hundraði upp í tæp 15 af hundraði árið 2006.

 Mynd 3. Útgefnar bækur eftir tegund 2006

Tölur um útgefnar bækur eru teknar saman árlega úr rafrænni Íslenskri útgáfuskrá Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og birtar á vef Hagstofunnar. Upplýsingar Íslenskrar útgáfuskrár eru byggðar á upplýsingum úr bókasafnskerfinu Gegni og á skylduskilum útgefenda rita til Landsbókasafns – Háskólabókasafns. Skráin er uppfærð reglulega og í henni birtist það efni sem til hefur náðst. Niðurstöður talningar úr grunninum eru því ekki samhljóða frá einum tíma til annars. Hér er miðað við stöðu skráningar í skrána þann 16. apríl 2008.

Tölulegur samanburður bókaútgáfunnar við fyrri ár er bundinn nokkrum annmörkum. Kemur það til af því að skráningu útgefinna rita var breytt samfara því sem Íslensk útgáfuskrá leysti Íslenska bókaskrá af hólmi fyrir fáum árum. Íslensk útgáfuskrá nær aðeins aftur til ársins 1999. Á vef Hagstofunnar eru birtar eldri tölur um bókaútgáfuna samkvæmt Íslenskri bókaskrá, eða frá 1965 fram til loka árs 2000.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.