FRÉTT MENNTUN 25. APRÍL 2007


Starfsmönnum við leikskóla fjölgaði um 277 og stöðugildum um 266
Í desember 2006 störfuðu 5.012 starfsmenn í 4.201 stöðugildum við leikskóla á Íslandi og hafa leikskólastarfsmenn aldrei verið fleiri. Árið áður störfuðu 4.735 starfsmenn í 3.935 stöðugildum og hefur því starfsmönnum fjölgað um 277 milli ára. Hlutfallsleg fjölgun starfsmanna er 5,9% sem er töluvert meiri fjölgun en á milli tveggja síðustu ára þar á undan þegar fjölgunin var 0,7%. Vert er að geta þess að leikskólabörnum fjölgaði líka óvenjumikið frá árinu áður, eða um 2,1%. Körlum meðal starfsmanna fjölgaði um 11 en konum um 266.

Stöðugildi starfsmanna eru 266 fleiri en í desember 2005, sem er 6,8% fjölgun. Þar sem stöðugildum fjölgar hlutfallslega meira en starfsmönnum hafa starfsmenn bætt við sig vinnu á þessu ári. Þegar litið er til ársins 1998 voru 41,5% starfsfólks í leikskólum í fullu starfi eða meira. Í desember síðastliðinn var þetta hlutfall orðið rúmlega 50% (50,1%).

Fjölgun í elstu aldurshópum starfsmanna
Þegar litið er á aldurskiptingu starfsmanna kemur fram að fjölmennasti aldurshópurinn er 30-39 ára, eins og árið 2005. Frá árinu 1998 til 2004 var aldurshópurinn 20-29 ára fjölmennastur meðal leikskólastarfsmanna. Alls voru 198 starfsmenn yngri en 20 ára í desember 2006 en samsvarandi tala árið á undan var 168 starfsmenn. Starfsmenn sem eru sextugir eða eldri eru 269 eða 5,4% starfsmanna. Ekki hafa áður verið svo margir starfsmenn í þessum aldurshópi og hefur hlutfall starfmanna á þessum aldri aukist ár frá ári frá 2002.

Menntaðir leikskólakennarar aldrei fleiri
Starfsfólki við uppeldi og menntun barna sem lokið hafa uppeldismenntun hefur farið fjölgandi síðastliðin ár. Menntaðir leikskólakennarar eru hlutfallslega fleiri nú en nokkru sinni áður síðan Hagstofan hóf að safna þessum upplýsingum árið 1998. Nú eru 33,5% allra starfsmanna sem sinna uppeldi og menntun barna í leikskólum með leikskólakennarapróf. Auk þess hafa 0,7% starfsfólks við uppeldi og menntun lokið diplómanámi í leikskólakennarafræðum og 5,9% hafa aðra uppeldismenntun. Alls hefur því 40,2% þessa starfsfólks lokið námi á sviði uppeldisfræða og hefur þetta hlutfall aldrei verið hærra.

Brottfall fer nú aftur minnkandi
Brottfall starfsmanna á milli áranna 2005 og 2006 var 24,1%, sem er nokkru minna en árið áður, þegar brottfallið var 25,8%. Mest ber á brottfalli meðal ófaglærðra starfsmanna. Alls hættu 761 ófaglærðir starfsmenn við uppeldi og menntun störfum á milli þessara tveggja ára. Hlutfallslega er mest brottfall meðal starfsmanna við ræstingar, eða 41,2%, sem er töluvert minna en árið á undan þegar það var 50,9%. Brottfallið er hlutfallslega minnst meðal aðstoðarleikskólastjóra og leikskólastjóra.

Það skal tekið fram að hér um tvær punktmælingar að ræða. Því koma starfsmenn sem hófu störf árið 2006 og hættu störfum fyrstu 11 mánuði ársins ekki fram í tölunum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.