FRÉTT MENNTUN 14. SEPTEMBER 2004

Hagstofa Íslands hefur tekið saman tölur um starfsfólk í skólum á háskólastigi í mars 2003.

Starfsmenn eru rúmlega 2.500 í rúmlega 1.800 stöðugildum
Starfsmenn skóla á háskólastigi í mars 2003 voru 2.515 í 1.809 stöðugildum. Þá er öll yfirvinna meðtalin. Starfsmönnum hefur fækkað um 16 frá árinu áður en stöðugildum fjölgað um 130. Karlar eru 48% starfsmanna í 930 stöðugildum en konur 52% starfsmanna í 879 stöðugildum. Um 44% starfsfólks eru í fullu starfi eða meira en 37% starfsmanna eru í minna en hálfu starfi. Hlutastörf eru algengari meðal kvenna en karla.

Konur eru færri meðal rektora, prófessora og dósenta
Almennt má segja að kynjamunur innan starfsheita sé minni árið 2003 en hann var árið 2002. Karlmenn eru umtalsvert fleiri í stöðum rektora, prófessora og dósenta. Konum í hópi rektora hefur fjölgað um eina frá fyrra ári, svo nú eru tvær konur rektorar en 9 karlar. Af 197 prófessorum eru 32 konur eða 16%, sem er sama hlutfall og árið áður. Karlar eru einnig fjölmennari í stöðum aðjúnkta og stundakennara. Konur eru hins vegar fleiri meðal lektora og í sérfræðistörfum hvers konar. Þá eru konur einnig mun fjölmennari í stöðum sem tengjast skrifstofustörfum, ráðgjöf, bókasafni og rekstri húsnæðis. Þar er hlutur kvenna 75% á móti 25% hlut karla.

Hlutastörf eru mjög algeng meðal háskólakennara
Starfsmenn við kennslu í íslenskum háskólum voru 1.715 í 1.067 stöðugildum. Þessi mikli munur á fjölda einstaklinga og stöðugilda skýrist af því hve margir starfsmenn við kennslu eru í hlutastörfum. Einungis 36% starfsmanna við kennslu eru í fullu starfi eða meira. Um helmingur starfsfólks við kennslu (48%) er í minna en hálfu starfi. Konur eru þar í miklum meirihluta en af 794 konum við kennslu eru 566 (71%) í hlutastarfi. Þegar skoðuð er skipting eftir starfsheitum má sjá að ríflega helmingur (56%) starfsfólks við kennslu eru aðjúnktar og stundakennarar. Stöðugildi þessa hóps eru 383 af 1.067 stöðugildum við kennslu eða 36%.

Þriðjungur háskólakennara er á aldrinum 40-49 ára
Karlar virðast hefja háskólakennslu yngri en konur, en þeir eru fjölmennari en konur í yngsta aldurshópnum, undir þrítugu. Konur eru fjölmennari í aldurshópnum 30-39 ára og þær eru einnig fjölmennari í aldurshópnum 40-49 ára, en það er stærsti aldurshópur starfsmanna við kennslu á háskólastigi. Alls er þriðjungur háskólakennara á aldrinum 40-49 ára. Næst fjölmennasti aldurshópurinn eru þeir sem eru 50-59 ára en þar eru karlar fjölmennari en konur, sem og í elsta aldurshópnum, 60 ára og eldri.

Um gögnin
Gögn um starfsfólk í háskólum eru fengin frá Fjársýslu ríkisins og frá skólunum. Til starfsfólks á háskólastigi telst allt starfsfólk sem var í launaðri vinnu í mars 2003 hjá háskólum og sérskólum á háskólastigi. Til starfsfólks við kennslu teljast þeir sem stunduðu einhverja kennslu í mars 2003. Kennarar sem ekki voru við kennslu í mars, s.s. vegna barneigna eða námsleyfis, eru ekki meðtaldir í þessum tölum, en teljast þó með í heildarfjölda starfsfólks ef þeir fengu laun á tímabilinu. Menntun starfsfólks byggist á hæstu gráðu eða prófi sem starfsmaður hefur lokið.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.