FRÉTT MENNTUN 03. MARS 2009


Starfsfólki við kennslu fjölgar þrátt fyrir fækkun nemenda

Haustið 2008 voru 7.858 starfsmenn í grunnskólum á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 232 frá hausti 2007 eða um 3,0%. Starfsmenn við kennslu og skólastjórnun voru 5.084 í 4.999 stöðugildum og hefur fjölgað um 85 frá fyrra ári, sem er 1,7% fjölgun. Stöðugildum starfsmanna við kennslu hefur fjölgað um 13 eða um 0,3%, sem þýðir að hver kennari vinnur skemur að meðaltali en árið áður. Starfsmönnum við kennslu fjölgar þó að grunnskólanemendum hafi fækkað um 330 frá síðasta skólaári. Þessar tölur eru úr gagnasöfnun Hagstofu Íslands sem safnar upplýsingum um starfsfólk í grunnskólum á Íslandi í október ár hvert.

Konum fjölgar meðal skólastjóra
Haustið 2007 voru konur í fyrsta skipti í meirihluta meðal skólastjóra. Haustið 2008 hefur konum meðal skólastjóra fjölgað enn frekar, og eru nú 54,8% skólastjóra. Eina starfsstéttin innan grunnskólans þar sem karlar eru í meirihluta eru húsverðir.

Karlmönnum við kennslu fjölgar um 6 manns en fækkar hlutfallslega um 0,2%. Eru karlar nú 20,8% kennara. Þó að karlmönnum fjölgi fækkar stöðugildum þeirra um 5.

Rúmur helmingur starfsfólks við kennslu er 30-49 ára
Haustið 2008 eru 55,8% kennara og skólastjórnenda á aldrinum 30-49 ára. Sé aldurshópnum skipt í 5 ára aldursbil eru flestir í aldurshópnum 35-39 ára eða 768 manns. Þegar aldur kennara er borinn saman við árið á undan hefur starfsmönnum yngri en 40 ára fjölgað um 12 og kennurum á aldrinum 40-54 ára hefur fækkað um 7 manns. Kennurum eldri en 55 ára hefur aftur á móti fjölgað um 80 manns frá fyrra ári. Meðalaldur starfsmanna við kennslu er nú 43,9 ár og hefur hækkað um 1,5 ár á síðastliðnum 6 árum.

Tæplega 85% starfsfólks við kennslu hefur kennsluréttindi
Alls hafa 84,8% starfsmanna við kennslu kennsluréttindi og er það óbreytt hlutfall frá fyrra ári. Haustið 2005 var þetta hlutfall hæst, 86,7%, og hefur því hlutfall réttindakennara lækkað um tæplega tvö prósentustig á þessum þremur árum. Hæst er hlutfall réttindakennara á landinu í Reykjavík þar sem 91,5% kennara hafa kennsluréttindi. Lægst er hlutfall réttindakennara á Austurlandi og Vestfjörðum þar sem 66,7% og 68,5% kennara hafa kennsluréttindi. Hlutfall réttindakennara á Vestfjörðum hefur hækkað um 4,6% frá hausti 2007.

Vert er að geta þess að 93,9% starfsmanna með kennsluréttindi hafa lokið háskólaprófi. Eldri kennurum með kennsluréttindi, sem luku prófi áður en kennaramenntun var flutt á háskólastig, fækkar ár frá ári.

Fleiri starfsmenn við kennslu eru í fullu starfi
Haustið 2008 eru 78,0% starfsfólks við kennslu og skólastjórnun í fullu starfi eða meira. Þetta hlutfall hefur verið að hækka undanfarin ár. Fyrir 3 árum var samsvarandi hlutfall 75,9%. Starfsmenn með kennsluréttindi eru hlutfallslega fleiri í fullu starfi en leiðbeinendur eru frekar ráðnir í hlutastarf.

Brottfall úr kennslu á milli ára er rúmlega 17%
Alls höfðu 863 starfsmenn við kennslu í október 2007 hætt eða fengið leyfi frá störfum í október 2008 og er brottfallið 17,3%. Þetta er svipað brottfall og síðastliðið ár þegar það mældist 17,4%. Það var hæsta brottfall sem mælst hafði í gagnasöfnun Hagstofu Íslands. Brottfall úr kennslu er hlutfallslega meira meðal þeirra sem ekki hafa kennsluréttindi og meðal þeirra sem eru í hlutastarfi.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.